Tix.is

Um viðburðinn

Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt við Háskóla Íslands og helsti dægurtónlistarfræðingur landsins, heldur tölu um samfélag dægurtónlistarmanna á Íslandi í Hljóðbergi, Hannesarholti, byggða á doktorsritgerð sinni um efnið.

Þar leiðir hann í ljós einstaka virkni hins íslenska dægurtónlistarsamfélags, en ritgerðin byggir á tuga viðtala auk reynslu hans sem tónlistarblaðamanns í hartnær tvo áratugi.

Arnar er með BA gráðu í félagsfræði frá HÍ, MA frá Edinborgarháskóla og mun verja téða doktorsritgerð þar í haust. Arnar hefur umsjón með fjölmiðlafræðinámi við HÍ á BA stigi og hefur staðið fyrir alls kyns viðburðum tengdum dægurtónlistarfræðum á þeim vettvangi, og m.a. haldið námskeið við Endurmenntunarstofnun. Hann er höfundur þriggja bóka um dægurtónlist og er að skrifa þá fjórðu, fyrir erlent forlag. Hann hefur skrifað fjölda blaðagreina um efnið í gegnum tíðina, setið í fjölmörgum nefndum, hérlendis sem erlendis, og er reglulegur álitsgjafi í útvarpi og sjónvarpi um allt sem viðkemur dægurtónlist.
Veitingastofur Hannesarholts eru opnar öll fimmtudagskvöld og býðst gestum að bóka borð í kvöldmat á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is