Tix.is

Um viðburðinn

Í Hannesarholti á opnunardegi Óperudaga í Reykjavík:

Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari flytja ljóðaflokkinn Svartálfadans eftir Jón Ásgeirsson við ljóð Stefáns Harðar Grímssonar, ásamt nokkrum af þekktustu perlum tónskáldsins sem fagnar níræðisafmæli sínu í októbermánuði.
Gunnar Þorsteinsson, þýðandi og þulur, les ljóðin úr Svartálfadansi milli laga.

Aðgangseyrir: 3500 kr (2500 fyrir eldri borgara og námsmenn)

Óperudagar í Reykjavík verða haldnir dagana 20. október til 4. nóvember. Svartálfadans er einn af viðburðum hátíðarinnar.