Tix.is

  • 06. okt. - Kl. 20:00
  • Secret Cellar
Um viðburðinn

Dömur og herra hita poppvélina og á þessari sýningu sækir hópurinn innblástur í heim kvikmyndana í víðum skilningi. Þó ekki verði um beinar hryllingsmyndir að ræða eru þarna atriði sem henta ekki börnum og skal bent á að sýningin er ekki ætluð áhorfendum yngri en átján ára og ekki heldur þeim sem eru viðkvæmir fyrir undrum mannslíkamans. Sérstakir gestir eru þær Nina la Voix frá New York og Ruby Tuesday frá Munchen. Takmarkaður miðafjöldi er í boði svo dömurnar og herrann hvetja fólk til að tryggja sér miða í tæka tíð. Að sjálfsögðu verður hægt að kaupa poppkorn á viðburðinum. Athugið að aðeins 50 miðar eru í boði á viðburðinn.