Tix.is

  • Frumsýnd 20. september
Um viðburðinn

Frá leikstjóranum sem færði okkur „Enter the Void“ og „Irreversible“ kemur besta mynd Gaspar Noé í mörg ár – sem er satanískt danspartí, sýrutripp og hryllingur sem þú verður að sjá!

20 nútímadansarar safnast saman í lokapartí í yfirgefnum skóla. Smám saman rennur það upp fyrir þeim að einhver hefur sett sýru í bolluna - en var það af illum ásetningi eða bara til að hrista upp í partíinu? Gaspar Noe býður þér til helvítis, himnaríkis og tilbaka í þessum magnaða teknósöngleik sem fer fram við undirleik Gary Numan, Chris Carter, Cerrone, M|A|R|R|S, Lil Louis, Dopplereffekt, Thomas Bangalter, Suburban Knights, Aphex Twin og The Rolling Stones svo einhverjir séu nefndir!