Tix.is

Um viðburðinn

Ameríska doom metal hljómsveitin Bell Witch mun halda tónleika í lok nóvember á Gauknum. Þar mun hljómsveitin spila nýjustu plötu sína, Mirror Reaper, í heild sinni. Hljómsveitin mun spila undir myndverki Taylor Bednarz og draga þannig fram söknuð þann og sorg þá er platan var innblásin af en annar stofnenda Bell Witch lést árið 2016.

Íslensku sveitirnar Vofa (doom metal) og Heift (black metal) munu hita upp.