Tix.is

Um viðburðinn

Torfi og Gríma búa við fyrstu sýn á ósköp venjulegu heimili, en ekki er allt sem sýnist. Mamma þeirra er stjórnsamur skipanaforingi. Pabbinn er viðutan vinnusjúklingur. Bróðirinn er ótemjandi unglingaskrímsli. Systkinin, Torfa og Grímu, dreymir um afslappað heimilislíf, gæludýr og gotterí. Þau hafa fengið nóg af hollustufæði, hreingerningum og skipunum. Þau langar að flytja til afa Gissa, sem er síkátur sjóari á farskipum. Þar væru þau hamingjusöm. En skyndilega fær afi Gissi gallsteinakast sem hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir Torfa og Grímu og fjölskylduna að Sólblómavöllum sautján.

Geta óskir verið hættulegar? Geta gallsteinar látið fólk hverfa sporlaust? Eru kókosbollur mikilvægur morgunverður? Er gott að allar óskir rætist?


Höfundur: Kristín Helga Gunnarsdóttir 

Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir 

Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson 

Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir 

Söngtextar: Karl Ágúst Úlfsson Lýsing: 

Lárus Heiðar Sveinsson 

Leikarar: Benedikt Karl Gröndal, Birna Pétursdóttir, Jóhann Axel Ingólfsson, Karl Ágúst Úlfsson, María Pálsdóttir, Margrét Sverrisdóttir o.fl.


Opnar leik- og söngprufur fyrir börn verða haldnar 20.–25. september næstkomandi. Leitað er að hæfileikaríkum börnum á aldrinum 9–12 ára til að fara með aðahlutverk í söngleiknum. Skráning hefst í byrjun september. Nánar auglýst síðar.