Tix.is

Um viðburðinn

Söngvarinn Stefán Jakobsson hefur fyrir löngu getið sér gott orð með hljómsveitinni DIMMA og víðar.
Undanfarin misseri hefur hann unnið að sinni fyrstu sólóplötu og er loksins kominn tími til að opinbera afraksturinn.
Platan nefnist einfaldlega JAK sem er einnig listamanns nafn Stefáns.
Tónlistina vann Stefán í samvinnu við Halldór Á Björnsson (Ledgend).
Textasmíðar voru svo í höndum Stefáns og Magnúsar Þórs.
Landskunnir tónlistarmenn og vinir ljáðu Stefáni raddir og hljóðfæraleik á plötunni sem spannar breitt litróf.
Nú þegar hafa lögin Flóttamaður og Ánauð fengið að hljóma í eyru landsmanna og fengið frábærar viðtökur og ratað inná vinslældarlista útvarpsstöðva.

Hljómsveitina skipa:

Stefán Jakobsson (Söngur)
Birgir Jónsson (Trommur)
Birkir Rafn Gíslason (Gítar)
Hálfdán Árnason (Bassi)