Frumsýnt 3. nóvember.
Iron Man og Svarta ekkjan hittast í partýi; eru þau óvinir eða elskendur, eru þau ókunnug eða hafa þau þekkst í þúsund ár? Tvískinnungur er einvígi þar sem tveir leikarar takast á við tvísaga fortíð. Þau stíga inn í hringinn vopnuð tungumáli sem særir og tælir, heillar, meiðir, strýkur, svíkur, rífur upp og rífur niður - í leit að raunverulegum leikslokum.
Undir hálfrímuðum texta slamm-skáldsins Jóns Magnúsar Arnarssonar kraumar ólgandi fíknikvika, tilfinningar og ástríður, þráhyggja, órar og líka spurningin um hver þú ert þegar þú ert ekki þú sjálfur.
Listrænir stjórnendur:
Höfundur: Jón Magnús Arnarsson
Leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson
Leikmynd og búningar:
Sigríður Sunna Reynisdóttir
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Tónlist: Young Nazareth
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Hljóð: Garðar Borgþórsson
Leikarar: Haraldur Ari Stefánsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir.