Tix.is

Um viðburðinn

Sýningar hefjast 22. nóvember.

Hundur í óskilum heldur hér áfram að varpa óvæntu ljósi á Íslandssöguna með húmorinn að vopni. Nú er komið að sögu kvenna og kvennabaráttunni. Frá því að konan kom til landsins í lok nítjándu aldar hafa íslenskir karlmenn gert sitt besta til að laga sig að breyttum aðstæðum. En hefur okkur tekist sem skyldi? Sagan greinir frá örfáum konum – raunar svo fáum að það er búið að skíra rakettur í höfuðið á þeim öllum. Hundur í óskilum veltir við hverjum steini og grefur upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt í sögu jafnréttisbaráttunnar. Búðu þig undir drepfyndna sagnfræði með söngvum. Kvenfólk sló í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar s.l. vetur og var tilnefnd til þrennra grímuverðlauna. 

Hundur í óskilum er margrómaður og verðlaunaður dúett sem er leikhúsgestum að góðu kunnur fyrir leiksýningar sínar Sögu þjóðar sem hlaut Grímuverðlaun árið 2012 og Öldina okkar sem gekk fyrir fullu húsi í Samkomuhúsinu á Akureyri og svo í Borgarleikhúsinu í kjölfarið. 

Listrænir stjórnendur:

Höfundar: Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen

Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir

Lýsing: Lárus Heiðar Stefánsson

Leikmynd og búningar: Íris Eggertsdóttir

Tónlist: Hundur í óskilum

Myndband: Jón Páll Eyjólfsson

Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson

 

Leikarar: Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen

 

Hljómsveit: Fríða Björg Pétursdóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir, Margrét Hildur Egilsdóttir, Una Haraldsdóttir.

 

Gestasýning frá Leikfélagi Akureyrar