Tix.is

  • Frumsýnd 31. ágúst
Um viðburðinn

Frá Óskarsverðlaunaleikstjóranum Kevin MacDonald kemur hin ósagða saga um Whitney í fyrsta skiptið!

Þessi einstaka heimildamynd um Whitney Houston er afar persónuleg frásögn sem skefur ekkert utan af lífi hennar og fjölskyldunnar og kafar mun dýpra en innsýn blaðafyrirsagna hafa veitt okkur til að kasta nýju ljósi á líf og feril Whitney sem átti sér enga líka. Whitney Houston sló fleiri met í músíkbransanum heldur en nokkur önnur söngkona í sögunni, þar á meðal seldi hún yfir 200 milljónir hljómplatna á heimsvísu og var eini listamaðurinn til að komast á topp bandarísku vinsældalistanna með 7 lögum í röð í 1. sætinu. Hún fór einnig með aðalhlutverkið í fjöldamörgum kvikmyndum sem slógu í gegn, t.d. í fyrsta hlutverkinu í bíómynd The Bodyguard á móti Kevin Costner þar sem hún lék vinsæla poppstjörnu, áður en ferill hennar fór að fara út af sporinu í ljósi skrýtinnar hegðunar og hneykslismála sem leiddu að lokum til dauða hennar einungis 48 ára að aldri.

Við notkun á myndefni sem aldrei áður hefur litið dagsins ljós, hljóðupptökur úr einkasöfnum, sjaldgæfar framkomur, hljóðsöfn og upprunaleg viðtöl við fólkið sem þekkti hana best, tekst Óskarsverðlanaleikstjóranum Kevin Macdonald (The Last King of Scotland, Touching the Void) á sinn einstaka hátt að fletta ofan af ráðgátunni um "Röddina" sem heillaði milljónir manna út um allan heim, þrátt fyrir að hún sjálf þurfti að berjast við að ná sáttum við hennar eigin fortíð sem oft hafði verið þyrnum stráð.

Heimildamyndin Whitney var heimsfrumsýnd utan keppni á Cannes kvikmyndahátíðinni 2018 og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda, þar að auki hlaut hún verðlaunin besta myndin í flokki heimildamynda í fullri lengd á nýafstaðinni alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Edinborg í Skotlandi.