Tix.is

Um viðburðinn

Frumsýnt 15. mars 2019

Matthildur er nýr söngleikur sem byggir á hinni rómuðu skáldsögu Roalds Dahl. Litla stúlkan Matthildur er óvenjulega gáfuð, tilfinninganæm og bókelsk og líklega þess vegna með sérlega ríkt ímyndunarafl. Foreldrar hennar eru þó af öðru sauðahúsi, fáfróð og óhefluð, og skólastjórinn Karítas Mínherfa er hreinasta martröð. Matthildur lumar þó á ýmsum ráðum gegn heimsku fólksins og með styrk sínum og hugrekki tekst henni að vinna sér sess í veröldinni. Þetta er fræg saga um litla stúlku sem þróar með sér ofurkrafta í baráttunni við ranglæti heimsins.  

Söngleikurinn var frumsýndur hjá Royal Shakespeare Company í Stratford-upon-Avon, fæðingarbæ Shakespeares árið 2010. Þaðan var hann fluttur á West End og Broadway og hefur víða slegið aðsóknarmet enda einstaklega glæsilegur söngleikur sem heillar unga sem aldna. Þá hefur Matthildur hlotið hátt í hundrað verðlaun af ýmsu tagi og þar af sextán verðlaun sem besti söngleikurinn. Handritshöfundur er leikskáldið Dennis Kelly sem hefur samið fjölda framúrskarandi leikrita, meðal annars Elsku barn sem Borgarleikhúsið sýndi árið 2011. Ástralinn Tim Minchin, höfundur tónlistarinnar, er einn fremsti söngleikjatónsmiður nú um stundir og hefur fengið fjölda verðlauna, nú síðast Olivier-verðlaunin fyrir söngleikinn Groundhog Day sem sýndur var í Old Vic í London og á Broadway í fyrra og hitteðfyrra. 

Listrænir stjórnendur:

Höfundur: Roald Dahl

Leikhandrit: Dennis Kelly

Tónlist og söngtextar: Tim Minchin

Íslenskun: Gísli Rúnar Jónsson

Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson

Danshöfundur: Lee Proud

Tónlistarstjórn: Agnar Már Magnússon

Leikmynd:  Ilmur Stefánsdóttir

Búningar: María Th. Ólafsdóttir

Lýsing: Þórður Orri Pétursson

Myndband: Ingi Bekk

Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir

Hljóð: Garðar Borgþórsson

Aðstoðarleikstjórn: Hlynur Páll Pálsson

 

Leikarar: Arnar Dan Kristjánsson, Björgvin Franz Gíslason, Björn Stefánsson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Rakel Björk Björnsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Erna Tómasdóttir, Ísabella Dís Sheehan, Salka Ýr Ómarsdóttir, Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir, Arnaldur Halldórsson, Baldur Björn Arnarsson, Edda Guðnadóttir, Emil Björn Kárason, Erlen Ísabella Einarsdóttir, Gabríel Máni Kristjánsson, Hilmar Máni Magnússon, Hlynur Atli Harðarson, Jón Arnór Pétursson, Linda Ýr Guðrúnardóttir, Lísbet Freyja Ýmisdóttir, María Pála Marcello, Patrik Nökkvi Pétursson, Þóra Fanney Hreiðarsdóttir og Þórey Lilja Benjamínsdóttir