Tix.is

Um viðburðinn

Velkomin til Skandinavíu! Hún er blaut af fortíðarþrá! Velkomin í veisluna okkar! Skálum fyrir Skandinavíu!

White Beauty kastar fram og kolfellir svipmyndir og náttúru sem einkenna Skandinavíu, enda er verkið bókstaflega flutt ofan á sviðstúlkun af hinum gróskumikla Skandínavíuskaga. Verkið er samstarfsverkefni finnskra, sænskra og norskra listamanna sem saman mynda sviðslistahópinn Mellanmjölk Productions. White Beauty fjallar um mál sem er mikið í deiglunni: Uppsveiflu öfgastefna á Norðurlöndunum.

Í verkinu sökkva flytjendurnir sér í norrænar hefðir, tilfinningaþrungna orðræðu og þá fagurfræði sem stuðningsmenn öfgakenndra afla á Norðurlöndunum þrífast á. Flytjendur standa fyrir veislu þar sem allir eru velkomnir. Með yljandi heillaboðum um samstöðu tæla þau áhorfendur, og sjálfa sig í leiðinni. Skemmtanakennt andrúmsloft veislunnar mengast af vandræðaleika í bland við fáránlegar og óþægilegar aðstæður. Fortíðarþráin endurtekur sig í sífellu og yfirbugar okkur öll að lokum.

White Beauty er fyrsta verkið sem sviðslistahópurinn Mellanmjölk Productions setur upp en hópurinn samanstendur af finnskum, norskum og sænskum gjörninga-, sirkus-, dans- og sjónlistamönnum. Saman vinna þau að því að ögra ríkjandi valdakerfum, innrættu vinnusiðferði og þeim áhrifum sem það hefur á vinnuna sjálfa. Hópurinn vinnur opið og rannsóknarmiðað með samvinnuformið, skapandi vinnuferla og tengsl verksins við áhorfendur. 


Tungumál: enska, norska, finnska og sænska.

Lengd: 80 mín.

Verkefna- og framkvæmdastjórar: Tanja Turpeinen & Daniel Klingen Borg.

Flytjendur: Mikko Niemistö, Riikka Niemistö, Sara Guldmyr, Daniel Klingen Borg, Moa Asklöf Prescott, Silja Kauppinen, Tanja Turpeinen.

Sviðshönnun: Silja Kauppinen & Sara Guldmyr.

Ljós: Teo Lanerva. 

Listrænir ráðgjafar: Tormod Carlsen & Anni Klein


White Beauty er unnið í samvinnu við Korjaamo Theatre og BIT Teatergarasjen. Verkið er stutt af Art Council Norway, Nordic Culture Fund, Nordic Culture Point, Fritt Ord, Finnish Cultural Foundasion, Uusimaa Regional Fond, Fond For Frilansere, City of Helsinki, c.off í Stokkhólmi, Svíþjóð og af DYNAMO í Óðinsvéum, Danmörku.