Tix.is

Um viðburðinn

Hnotubrjóturinn - St. Petersburg Festival Ballet
Börn 12 ára og yngri fá helmings afslátt í miðasölu Hörpu!

Hnotubrjóturinn er einn vinsælasti ballet sögunnar. Hrífandi tónlist Tchaikovskys skapar töfrandi jólastemningu þar sem allt getur gerst. Ballettinn er ómissandi hluti af jóladagskrá margra tónleikahúsa erlendis og börn jafnt sem fullorðnir hlakka árlega til þess að njóta uppfærslunnar. Harpa kynnir með stolti þessa sýningu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og St. Petersburg Festival Ballet.

Á aðfangadagskvöld fær María fallegan hnotubrjót að gjöf frá hinum dularfulla Drosselmeyer. Atburðarásin tekur óvænta stefnu þegar leikföngin undir jólatrénu lifna við og inn koma mýs í einkennisbúningum. Hnotubrjóturinn breytist í prins og leiðir Maríu inn í ævintýraland þar sem ýmislegt óvænt gerist. Tónlist Tchaikovskys er ein sú eftirminnilegasta af þeim ballettum sem samdir hafa verið. Í verkinu eru margar laglínur sem flestir þekkja vel og halda upp á.