Tix.is

Um viðburðinn

Rokkhundana í Killer Queen þarf vart að kynna fyrir gestum Græna hattsins en þessi næstum 10 ára gamla heiðurssveit hefur troðfyllt staðinn í hvert skipti sem talið hefur verið í þennan ótrúlega lagabanka sem Queen hefur skilið eftir sig. Sökum útrásar miðlima bandsins verða þetta einu tónleikarnir sem Killer Queen spilar á það sem eftir lifir 2018 þannig að það er skyldumæting! We will tvímælalaust Rock you!