Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Árstíðir blæs til tónleika á Húrra föstudaginn 24. ágúst. Tilefnið er útgáfa 5. breiðskífu sveitarinnar „NIVALIS“ sem kom út í sumar á vegum fransk/bandaríska útgáfufélagsins Season of Mist. Platan hefur hlotið einróma lof hjá gagnrýnendum bæði hér heima og erlendis, og er af flestum talin sú besta sem komið hefur frá Árstíðum. Á tónleikunum verða leikin vel valin lög af nýju plötunni í bland við eldra efni af 10 ára löngum ferli sveitarinnar.

VASI mun hefja leik á undan Árstíðum. VASI er bandarísk/rússnesk söngkona sem fyrir skemmstu gaf út myndband við lagið „HOUSE“ sem er fyrsta lagið af væntanlegri EP plötu sem kemur út á þessu ári. Tónlistin hennar einkennist af kröftugum söng og rafskotnum töktum sem hún gerði í samstarfi við færeyska pródúserinn SAKARIS, en hann er stjórnaði einnig útsetningum og upptökum á nýrri plötu Árstíða.  

Hús opnar kl 21 og miðaverð er 2.000 kr í forsölu en 2.500 kr við hurð.