Tix.is

Um viðburðinn

The Vintage Caravan fagna útgáfu nýrrar breiðskífu, Gateways, með tónleikum í Iðnó. Platan verður flutt í heild sinni með hjálp aukahljóðfæraleikara sem komu við sögu í upptökuferlinu.

Gateways er fjórða breiðskífa sveitarinnar, platan kemur út 31. Ágúst, og gefur útgáfurisinn Nuclear Blast og Alda hana út.

Hljómsveitin hefur spilað gríðarlega mikið erlendis seinustu fjögur ár, leikið á mörgum stærstu rokk hátíðum Evrópu (Roskilde, Wacken, Hellfest, Graspop, Montreux Jazz Festival) og mánuði eftir hljómleikana í Iðnó mun bandið fara í mánaðar langt tónleikaferðalag um Evrópu.