Tix.is

  • 10. - 13. júlí
Um viðburðinn

Eistnaflug er tónlistarhátíð sem haldin verður í 15. sinn í ár en hún hefur verið haldin árlega síðan sumarið 2005. Af þessu tilefni hverfum við aftur til rótanna og höldum hátíðina í Egilsbúð en þar var hún haldin frá upphafi og til ársins 2014.

Eistnaflug er innihátíð í Neskaupstað, vinalegum litlum bæ á Austfjörðum, jafn langt frá Reykjavík og hægt er að komast án þess að fara úr landi. Síðan 2005 hefur hátíðinni vaxið fiskur um hrygg og er orðinn að fjögurra daga tónlistarhátíð, þar sem metal-, harðkjarna-, pönk-, rokk- og indí-bönd deila saman sviði.

Eistnaflug er einstakur tónlistarsuðupottur, með nokkrum sérvöldum erlendum böndum sem spila ásamt gífurlegu úrvali alls þess besta sem íslenska senan hefur upp á að bjóða á hverju ári.





HATE [PL], Primordial [IE], Graveyard [SE]

Sólstafir [IS], DIMMA [IS], Brain Police [IS], Páll Óskar [IS], The Vintage Caravan [IS], Auðn [IS], Une Misère [IS]

Aaru [IS], Alchemia [IS], Alcoholia [IS], Aragrúi [IS], Bardspec [NO], Blóðmör [IS], Bruðl [IS], CXVIII [IS], DDT Skordýraeitur [IS], Devine Defilement [IS], Dynfari [IS], Ekkert [IS], Elli Grill [IS], Golden Core [NO], Great Grief [IS], GRIT TEETH [IS], Landscape of Hope [CA], Meistarar dauðans [IS], The Moronic [IS], Morpholith [IS], Nexion[IS], Nyrst [IS], Ottoman [IS], Paladin [IS], Saktmóðigur [IS], Sárasótt [IS], Tuð [IS], Úlfúð [IS], Vicky [IS], Volcanova [IS], While My City Burns [IS], xGADDAVÍRx [IS].