Tix.is

Um viðburðinn

Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran, Egill Árni Pálsson tenór, Oddur Arnþór Jónsson baritón og Signý Sæmundsdóttir sópran syngja og kynna fjölbreytta efnisskrá tileinkaða þeim Guðmundi Jónssyni, Guðrúnu Á. Símonardóttur og Magnúsi Jónssyni. Sérstakur gestur verður Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran. Söngvararnir stikla á stóru og leiða okkur í gegnum einstakan feril þessara merku söngvara. Glæsilegir tónleikar til skemmtunar og yndisauka, með vel þekktum íslenskum einsöngsperlum, aríum og óperusenum.

Þau Ingibjörg Aldís, Egill Árni, Oddur Arnþór og Hildigunnur eru söngvarar af yngri kynslóðinni og hafa verið áberandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár. Þau hafa komið fram við fjölmörg tækifæri, bæði á tónleikum og óperusviðum hérlendis og erlendis. Þau taka nú höndum saman og heiðra þessa glæsilegu söngvara sem ruddu brautina. Signýu Sæmundsdóttur þarf vart að kynna, hún er ein af okkar fremstu söngkonum um árabil og hefur sungið fjöldann allan af tónleikum og óperuhlutverkum. Hún verður hér í hlutverki kynnis, en stígur einnig á svið í nokkrum vel völdum einsöngslögum.

Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari spilar með af sinni alkunnu snilld. Ólafur Beinteinn Ólafsson harmónikkuleikari spilar einnig með í nokkrum þekktum lögum. Þess má geta að Ólafur Beinteinn er hugmyndasmiður að tónleikaröðinni Brautyðjendur, og faðir Ingibjargar Aldísar.

Upplagt tækifæri fyrir bæði unga og aldna að kynnast merkilegum ferlum þessara stórbrotnu listamanna. Tónleikar fullir af skemmtilegum fróðleik, og glæsilegum óperusmellum og íslenskum einsöngsperlum.