Staður: Iðnó
Stund: 7.september kl 21:30
Flytjendur: Þórdís Gerður Jónsdóttir - selló, Andri Ólafsson - kontrabassi, Grímur Helgason - klarinett, Guðmundur Pétursson - rafgítar, Matthías Hemstock - slagverk, Steingrímur Karl Teague - píanó
Sellóleikarinn Þórdís Gerður Jónsdóttir er hugfangin af jazzi og spuna, þó svo að sellóið eigi sér ekki margar fyrirmyndir innan jazzheimsins. Á tónleikum hennar á Jazzhátíð Reykjavíkur verða fluttar hennar eigin tónsmíðar þar sem leitast er við að finna sellóinu hlutverk sem leiðandi hljóðfæri í jazzi og spuna en einnig að nálgast jazz eins og um sígilda kammertónlist væri að ræða. Þar sem Þórdís hefur numið bæði jazz og klassíska tónlist bera jazztónsmíðar hennar keim af sígildri tónlistarhefð.
Flytjendur á tónleikunum eru auk Þórdísar, Andri Ólafsson á kontrabassa, Grímur Helgason á klarinettu, Guðmundur Pétursson á rafgítar, Matthías Hemstock á slagverk og Steingrímur Karl Teague á píanó.