Staður: Tjarnarbíó, Reykjavík
Stund: 6.september kl 19:30
Flytjendur: Giulia Valle - kontrabassi, Marco Mezquida - píanó, David Xirgu - trommur
Kontrabassaleikarinn Giulia Valle hefur verið á hraðri uppleið með tríói sínu undanfarin ár og komið fram á merkum jazzhátíðum eins og Montreal Jazz Festival, San Francisco Jazz og klúbbum á borð við Blue Note í New York og Bimhuis í Amsterdam. Hún fangar hlustandann með leik sínum sem er fullur eldmóðs og tjáningar en á sama tíma hlýr og fágaður. Tríó hennar gerir út frá Barcelona og katalónísk stemmning er undirliggjandi í leik tríósins.
“Ekki missa af henni, Valle mun slá í gegn” —Brian Morton, Jazz Journal, London
“Valle er ástríða á strengjum og hámarks spenna í tónsmíðum, orkumikil á sviði með einstakan hæfileika til að fella saman fjölbreytta stíla.” — Pere Pons | Avui/El Punt - Barcelona