Staður: Tjarnarbíó, Reykjavík
Stund: 5.september kl 19:30
Flytjendur: Ingi Bjarni Skúlason (IS) - píanó, Bárður Reinert Poulsen (FO) - kontrabassi, Magnús Trygvason Eliassen (IS) - trommur
Tríó píanóleikarans Inga
Bjarna heldur útgáfutónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur vegna nýrrar plötu. Nýja
platan, Fundur, mun vera gefin út af plötuútgáfunni Dot Time Records í New
York. Með Inga Bjarna leika Magnús Tryggvason Eliassen á trommur og Bárður Reinert
Poulsen frá Færeyjum á bassa.
Meginþráður verkefnisins er eins konar óður til norðursins.
Hér er horft til norðurs, norðrið sem er heima og fundin tenging við ræturnar.
Platan ber nafnið Fundur, í þeirri merkingu að hafa fundið eitthvað. Er tenging
við ræturnar fundin? Hugmyndir norræna þjóða um frelsi í tjáningu spila einnig
inn í tónlistina. Stutt lýsing á tónlistinni er e.t.v á þessa leið: Eigin
þjóðlagatónlist með jazzívafi, byggð á mínímalískum en þó skilvirkum
laglínum.
Ingi Bjarni er nýfluttur heim til Íslands eftir að hafa lokið
sérhæfðu mastersnámi í tónlist sem kallast Nordic Master: The Composing
Musician. Námið fór fram í Gautaborg, Kaupmannahöfn og Osló – ein önn á hvorum
stað.
Ingi Bjarni hefur spilað á alþjóðlegum hátíðum líkt og
Copenhagen Jazz Festival, Vilnius Jazz Festival í Litháen og Lillehammer Jazz
Festival í Noregi. Þar að auki hefur hann komið fram á ýmsum minni
tónleikum víðsvegar um Evrópu, þar á meðal í Færeyjum, Belgíu, Eistlandi og
Svíþjóð.