Tix.is

Um viðburðinn

Sagan af dátanum  - 100 ár frá frumflutningi

Á fyrstu tónleikum starfsársins leikur Kammersveit Reykjavíkur Söguna af dátanum eftir Igor Stravinsky. Sögumaður er Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og stjórnandi er Bjarni Frímann Bjarnason.

Verkið var frumflutt fyrir 100 árum síðan, eða þann 28. september 1918 í Lausanne í Sviss.

Verkið samdi Stravinsky við texta eftir C.F. Ramuz, sem byggði söguna á gamalli rússneskri þjóðsögu en íslenska þýðingu gerði Þorsteinn Valdimarsson.

Hermaðurinn Jósef er á leið heim í stutt frí. Á leiðinni sest hann niður til að leika á fiðluna sína þegar Kölski, í gervi gamals manns, býður honum uppá skipti; Kölski fær fiðluna í skiptum fyrir bók sem á að færa þeim sem kann með að fara, óendanleg auðævi. Jósef gengur að samningnum en kemst fljótt að því að auðurinn færir honum ekki hamingju. Hann losar sig við bókina og kaupir fiðluna aftur, en viðskiptum hans og Kölska er þó langt frá því að vera lokið.

Sagan er áminning um að hamingjan verður ekki keypt þrátt fyrir öll heimsins auðævi, og á jafn vel við nú og fyrir 100 árum þegar verkið var frumflutt.