Hátíðarpassinn veitir aðgang fyrir handhafa að öllum sjö tónleikum Sönghátíðar í Hafnarborg. Annars kostar hver miði á hverja tónleika 3.000 kr. fullu verði eða 2.500 kr. með afslætti fyrir eldri borgara og öryrkja.
Tónleikar Sönghátíðar í Hafnarborg 2018 eru:
Sunnudagur 8.7. kl. 20:00-22:00.
Symphonia Angelica. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Sigurður Halldórsson sellóleikari og Halldór Bjarki Arnarson semballeikari flytja barokktónlist eftir Händel, Monteverdi og Porpora.
Þriðjudagur 10.7. kl. 20:00-22:00.
Þjóðlög í þjóðleið. Söngoktettinn Cantoque: Hallveig Rúnarsdóttir, Þórunn Vala Valdimarsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Þorkell Helgi Sigfússon, Hafsteinn Þórólfsson og Örn Ýmir Arason koma fram.
Miðvikudagur 11.7. kl. 20:00-22:00.
Baðstofubarokk. Eyjólfur Eyjólfsson söngur og langspil, Björk Níelsdóttir söngur og langspil og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir söngur og barokkselló.
Fimmtudagur 12.7. kl. 20:00-22:00.
Master class tónleikar. Kristinn Sigmundsson og ungir söngvarar sem eru virkir nemendur á master class námskeiði hans flytja sönglög og aríur. Matthildur Anna Gísladóttir, píanó.
Föstudagur 13.7. kl. 20:00-22:00.
It’s a Woman’s World. Olga Vocal Ensemble fagnar þekktum kvenkyns listamo¨nnum si´ðustu 1000 a´ra. Pétur Oddbergur Heimisson, Matthew Smith, Jonathan Ploeg, Arjan Lienarts og Philip Barkhudarov syngja.
Laugardagur 14.7. kl. 17:00.
Fjölskyldutónleikar. Íslensk og erlend þjóðlög. Funi: Bára Grímsdóttir og Chris Foster. Duo Atlantica: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui. Einnig koma fram börn í söngsmiðju hátíðarinnar, sem Ingibjörg Fríða og Sigurður Ingi stjórna.
Sunnudagur 15.7. kl. 20:00.
Fullveldi 1918-2018. Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands er fagnað með því að flytja hápunkta úr íslenskri söngsögu síðustu hundrað ára. Flytjendur eru Þóra Einarsdóttir sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Francisco Javier Jáuregui gítar, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó og Ásta Marý Stefánsdóttir sópran, sem er Vox Domini verðlaunahafi.
Um Sönghátíð í Hafnarborg:
Sönghátíð í Hafnarborg er tónlistarhátíð sem hefur það að markmiði að koma list raddarinnar á framfæri. Hátíðin 7. – 15. júlí 2018 býður upp á sjö tónleika og fjögur námskeið. Á tónleikunum koma fram m.a. Kristinn Sigmundsson, Þóra Einarsdóttir, Symphonia Angelica, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Björk Níelsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Funi, Duo Atlantica og sönghóparnir Cantoque og Olga Vocal Ensemble. Hátíðin býður upp á master class fyrir unga söngvara og söngnemendur með Kristni Sigmundssyni, söngnámskeið fyrir áhugafólk með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, söngsmiðju fyrir 6-12 ára börn með Ingibjörgu Fríðu og Sigurði Inga og íslenska þjóðlaganámskeiðið Syngjum og kveðum saman með Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Hátíðin heldur einnig úti YouTubestöð með viðtölum við söngvara um söngtækni. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir en meðstjórnandi er Francisco Javier Jáuregui. www.songhatid.is
sönghátíð í hafnarborg