Tix.is

Um viðburðinn

Það eru komið að tónleikaröðinni "Einu sinni á ári" hjá hljómsveitinni Hvanndalsbræðrum en tónleikaröðin er eins og nafnið gefur til kynna óvenju stutt eða aðeins einir tónleikar. Þetta verða fyrstu og jafnframt að öllum líkindum síðustu tónleikar hljómsveitarinnar á Græna Hattinum á þessu ári þar sem ýmsir meðlimir bandsins halda nú út í hinn stóra heim í leit að tilgangi lífsins. 

Á efnisskránni verða lang skástu lög sveitarinnar þar sem stiklað verður á stóru á hinum langa ferli, eitthvað verður um bull og vitleysu eins og gengur en fyrstu og fremst alveg ógeðslega gaman. Okkur þætti gríðarlega vænt um að sjá sem flesta koma á Græna Hattinn þann 23. júní og gleðjast með okkur.