Tix.is

Um viðburðinn

Emilíana gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 1995, aðeins 18 ára gömul og sló umsvifalaust í gegn enda einstakur túlkandi. Ekki leið á löngu þar til hún hóf að semja tónlist m.a. með Jóni Ólafssyni og fljótlega skrifaði hún undir plötusamning í Bretlandi. Síðan þá hefur hún gefið út fjölda hljómplatna og ferðast um heiminn þveran og endilangan með tónlist sína. 
Emilíana ætlar á þessum spjalltónleikum að heilsa aðeins upp á Frank Mills og fleiri sem tengjast áhugaverðum ferli.


Ef keyptir eru miðar á þrenna eða fleiri tónleika í Af fingrum fram tónleikaröðinni er miðaverðið kr. 4.150 á tónleika í stað kr. 4.900