Tix.is

Um viðburðinn

Vinirnir og söngvaskáldin Svavar Knútur og Kristjana Stefáns fagna 10 ára samtarfi um þessar mundir og að því tilefni koma þau saman á sinni árlegu sumar tónleikaferð. Þar ríkir bæði gleði og angurværð ásamt örlitlum fíflagangi og bera þau vinirnir á borð fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton með viðkomu hjá Páli Ísólfssyni, auk frumsaminna laga og hinna ýmsu gleði- og tregabomba, ljóðalestri og gamansagna.

Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Þau gáfu út dúettaplötuna Glæður árið 2011 sem er löngu uppseld hjá útgefanda.

Miðaverð er kr. 3.900 og frítt fyrir börn.

Hægt er að nálgast miða á tónleikana á Græna Hattinum hér