Tix.is

Um viðburðinn

Þann 21. júní 2018 verður Villi 30 ára. Þetta kemur sjálfsagt mörgum á óvart, enda flestir staðið í þeirri trú að hann væri löngu orðinn þetta gamall og jafnvel eldri.

Af þessu tilefni skal blásið til tónleikaskemmtunar, en þar fá að heyrast lög og ljóð sem aldrei hafa heyrst áður í bland við brot af því besta frá Vandræðaskáldum, gestaatriði og þá miklu eldfimleika sem að afmælisbarnið hefur gerst svo frægt fyrir á undanförnum árum.