MIMRA verður ásamt hljómsveit á tónleikaferðalagi í sumar til að kynna nýútkomna plötu sína Sinking Island. Tónlist MIMRU er í alternative folk stíl, orchestral pop á stórum skala en samt sem áður einlæg, vönduð og lætur engann ósnortinn. Hljómsveitina skipa þrjár öflugar tónlistarkonur. María Magnúsdóttir söngkona, lagahöfundur og hljómborðsleikari, Sylvía Hlynsdóttir (Bjork, Jónas Sig) spilar á trompet og synta og Jara Holdert spilar á gítar og syngur. Jara sjálf er stórkostlegt söngvaskáld frá Hollandi og mun hita upp fyrir hljómsveitina á tónleikum þeirra. Tónlist MIMRU er fullkomin fyrir aðdáendur Feist, Bat for Lashes og Laura Mvula og tónlist Jöru ber keim af söngvaskáldum 7. áratugarins; Bob Dylan og Joni Mitchell.
Platan Sinking Island kom út í fyrra og hefur verið vel tekið, platan er heildstætt verk út í gegn þar sem MIMRA sá um upptökustjórn og hljóðhönnun. Textar plötunnar eru að miklu leiti sprottnir frá reynslu Maríu eftir sambandsslit þegar fyrrverandi maður hennar kom út sem trans kona. Platan er fáanleg á geisladisk og vinyl sem og gegnum allar helstu streymiveitur.
,,She carves her own space between electronic vibes and multi-layered classic arrangements for a full band. From the very first song of the album, Our Great Escape, MIMRA grabs attention with her wide range of voice and deep passion in personal lyrics. If you look for being touched by music, you will get it here.” – Rvk on Stage
Hljómsveitin ásamt fylgisveinum verður á roadtrip ferðalagi um Ísland á meðan á tónleikaröðinni stendur. Hægt verður að fylgjast með ævintýrum þeirra, sorgum og sigrum gegnum skámerkið #mimraroadtriptour og á facebook síðu hópsinsMIMRA Roadtrip Tour.
9.júní - Kirkjuhvol, Kirkjubæjarklaustu
10.júní - Brugghúsið Beljandi, Breiðdalsvík (frítt inn)
12.júní - Fjarðarborg, Borgarfjörður Eystri
13.júní - Bláa kirkjan, Seyðisfjörður
14.júní - Græni hatturinn, Akureyri
15.júní - Hótel Blanda, Blönduós
16.júní - Café Riis, Hólmavík
17.júní - Edinborgarhúsið, Ísafjörður
19.júní - Brúarás Geo Center, Borgarfjörður
20.júní - Akranes - Dularfulla búðin, Akranes
21.júní - Húrra, Reykjavík (ásamt Hljómsveit Unu Stef)
Tónleikar hefjast kl.21.00 og miðaverð er 2000kr.