Tix.is

Um viðburðinn

MISÞYRMING - HÚRRA 27. JÚLÍ

Íslenska svartmálmssveitin Misþyrming hefur verið að gera það gott undanfarin misseri en þrátt fyrir að hafa einungis gefið út eina plötu hefur hljómsveitin ferðast um víðan völl og túrað, sem og komið fram á fjölda tónlistarhátíða um Evrópu síðan 2015. Plata þeirra, Söngvar elds og óreiðu, hefur fengið einróma lof gagnrýnenda og aðdáenda svartmálmsins um allan heim, og endaði hún meðal annars í 9. sæti yfir plötur ársins 2015 hjá Noisey
Nú, þann 27. júlí mun hljómsveitin efna til tónleika á skemmtistaðnum Húrra, en það verða einu tónleikar hljómsveitarinnar hérlendis á þessu ári (að undanskildu Oration festival síðastliðinn febrúar), þar sem trymbill sveitarinnar býr erlendis um þessar mundir. Ekkert verður til sparað og má búast við að hljómsveitin verði í feiknarformi, þar sem hún undirbýr nú framkomu á þeim virtu hátíðum Hellfest í Frakklandi og Brutal Assault í Tékklandi.

Sérstakir gestir verða World Narcosis og Alvia Islandia.

Miðaverð er 1.500 krónur í forsölu og 2.000 við hurð.