Tix.is

Um viðburðinn
Ösp Eldjárn ólst upp í Svarfaðardalnum við alvöru tónlistaruppeldi en árið 2011 flutti hún til London til að vinna í sinni eigin tónlist. Hún hefur gefið út tvær undurfagrar hljómplötur með hljómsveit sinni, Brother Grass, en hennar fyrsta sólóplata, Tales from a popular tree, kom út á síðasta ári. Ösp semur fagur þjóðlög undir norrænum áhrifum sem hlýja sálinni en eftir að hún heimsótti Havarí síðasta sumar kom ekki annað til greina en að fá hana aftur. Meðspilarar Aspar eru ekki af verri endanum, bróðir hennar og gítarsnillingurinn Örn Eldjárn og Valeria Pozzo. Láttu ekki þessa mögnuðu listakonu framhjá þér fara.

 
Nánar á havari.is

18 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.