Tix.is

Um viðburðinn

Á stuttum tíma hefur töffarinn Hildur unnið hug og hjörtu landsmanna og ekki að ástæðulausu. Lagið hennar I’ll walk with you skaust hratt upp vinsældarlista útvarpstöðvanna og var meðal annars valið popplag ársins í fyrra. Og lag hennar Bammbaramm sló rækilega í gegn í undankeppni Eurovision. Hér er á ferðinni geggjuð poppdíva og með dynjandi takti gerir hún áhorfendum erfitt fyrir að sitja kyrrir í sætum sínum. Með grípandi lögum, tærri rödd og eftirminnilegri sviðsframkomu heillar Hildur alla upp úr skónum. Hildur mætir í Havarí 19. júlí og við getum einfaldlega ekki beðið.

Nánar á havari.is 


18 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.