Tix.is

Um viðburðinn

Lay Low heimsótti Havarí fyrst sumarið 2017 og hélt þar ógleymanlega tónleika. Það er því með mikilli ánægju sem við tilkynnum að hún ætlar að heimasækja okkur aftur og nú á Regnbogahátíð Havarí og Pink Iceland þann 14. júlí. Lay Low spratt fram á sjónarsviðið árið 2006 og á augabragði heillaði hún þjóðina upp úr skónum með sínum einstaka sjarma og þroskuðum lagasmíðum. Síðan þá hefur hún fylgt okkur sem einn fremsti blús-, folk- og rokklistamaður þjóðarinnar. Það er gríðarlega dýrmætt fyrir okkur að fá Lay Low í Havarí og öruggt mál að áhorfendur eiga magnaða kvöldstund í vændum.
Tónleikar eru hluti af Regnbogahátíð Havarí og Pink Iceland. Komdu og fagnaðu með okkur litskrúðugu lífi helgina 12 - 14. júlí.

Nánar á havari.is

18 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.