Tix.is

Um viðburðinn

Brahms og Bjarni Frímann – Sinfóníuhljómsveit Íslands
16. maí 2019 » 19:30 Eldborg | Harpa

Tónleikarnir hétu áður Brahms og Tortelier

Tveir frábærir íslenskir strengjaleikarar leiða saman hesta sína á þessum tónleikum. Ari Þór Vilhjálmsson hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn og er nú leiðari 2. fiðlu Fílharmóníusveitarinnar í Helsinki, en Sigurgeir Agnarsson er leiðandi sellóleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sama leika þeir tilfinningaþrunginn tvíkonsert Brahms fyrir fiðlu og selló, síðasta hljómsveitarverk meistarans. Akademíski hátíðarforleikurinn er glaðvært skemmtistykki sem Brahms samdi í þakkarskyni eftir að honum hafði verið veitt heiðursdoktorsnafnbót við þýskan háskóla. Verkinu lýkur með stúdentasöngnum Gaudeamus igitur og á það vel við á vordögum þegar útskriftir eru á næsta leiti.

Louise Farrenc var framúrskarandi píanóleikari á 19. öld og starfaði í meira en þrjá áratugi sem prófessor í píanóleik við Tónlistarháskólann í París. Hún samdi fjölmörg píanó- og kammerverk, en einnig þrjár rómantískar sinfóníur sem þykja sérlega vel heppnaðar. Á síðustu árum hafa tónsmíðar Farrenc verið grafnar úr gleymsku og þykir ljóst að hún verðskuldar stóran sess í tónlistarsögunni. Tónleikarnir hefjast á spænskuskotinni fantasíu Chabriers þar sem hann fléttar saman sprellfjöruga spænska dansa með eftirminnilegum tilþrifum.

Breyting: Bjarni Frímann Bjarnason, aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hleypur í skarðið fyrir Yan Pascal Tortelier, aðalstjórnanda sveitarinnar, en hann þurfti því miður að aflýsa komu sinni vegna veikinda. Efnisskráin er óbreytt.

EFNISSKRÁ
Emmanuel Chabrier: España
Johannes Brahms: Konsert fyrir fiðlu og selló
Louise Farrenc: Sinfónía nr. 3
Johannes Brahms: Akademískur hátíðarforleikur

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Bjarni Frímann Bjarnason

EINLEIKARAR
Ari Þór Vilhjálmsson
Sigurgeir Agnarsson

Tónleikakynning í Hörpuhorni » 16. maí kl. 18:00