Tix.is

Um viðburðinn

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og fá þeir hlutskörpustu að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi tónleikanna er hin brasilíska Ligia Amadio, aðalstjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Montevideo í Úrúgvæ, en hún stjórnaði kvennatónleikum Sinfóníunnar árið 2015 við sérlega góðar undirtektir.

Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listaháskóli Íslands leiða saman hesta sína og styðja við okkar efnilegasta tónlistarfólk á leið þess inn í heim atvinnumennskunnar. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki á hverju ári í aðdraganda þessara tónleika og stemningin á tónleikunum sjálfum er engu lík. Einleikarakeppni SÍ og LHÍ fer fram á haustmánuðum 2018 og verða nöfn sigurvegaranna birt hér á vef hljómsveitarinnar þegar úrslit liggja fyrir.

EFNISSKRÁ
Gustave Charpentier Depuis le jour, úr Louise
Leonard Bernstein Glitter and be Gay, úr Candide
W.A. Mozart Der Hölle Rache..., úr Töfraflautunni
Jean Sibelius Fiðlukonsert í d-moll
Samuel Barber Must the Winter Come So Soon, úr Vanessu
W.A. Mozart Smanie implacabili, úr Cosi fan tutte
Gustav Mahler Urlicht
Jean Sibelius Var det en dröm, úr Fimm söngvum op. 37
Georges Bizet Habanera, úr Carmen
Edward Elgar Sellókonsert í e-moll

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Ligia Amadio   

EINLEIKARAR
Harpa Ósk Björnsdóttir, söngkona
Guðbjartur Hákonarson, fiðluleikari
Silja Elsabet Brynjarsdóttir, söngkona
Hjörtur Páll Eggertsson, sellóleikari