Tix.is

Um viðburðinn

Athugið athugið!

HAM boðar til rokkmessu og mikinn fögnuð á Húrra föstudaginn 1. júní.

HAM þarf ekki að kynna enda löngu unnið sér sess sem einhver háværasta og geðþekkasta rokksveit nútímans. Á Húrra mun HAM bjóða upp á hugvíkkandi kokteil nýrra og klassískra verka og kafa djúpt í rannsóknir sínar á svikum, dauða og helvíti mannanna.

Þetta er hvorki í fyrsta skiptið sem HAM boðar til veislu, né verður það hið síðasta. Rokkmessa á Húrra verður þó alveg einstök. HAM er öllum nauðsynleg hughreysting og andans lækning. Komið og sjáið HAM. Hlýðið á sannleikann. Húrra!