Tix.is

Um viðburðinn

Aðdáendur Maxa hafa beðið eftir nýju tónlistarævintýri um músina ástsælu, Maxímús Músíkús, og nú verður fjör þegar Maxi fer upp á fjöll. Maxi ferðast ekki einn því að með í för eru tvær gestamýs, Viva og Moto, sem komu í tösku erlends hljómsveitarstjóra og eru mjög spenntar að sjá Ísland. Ljúf og dillandi íslensk þjóðlög skipa stóran sess en tónverkin sem fléttast við söguna eru af ýmsum toga.

Tónlistin býr til réttu stemmninguna hvort sem hún er gömul á músaballi eða ný með ískaldan blæ fyrir jöklaferðina og drynjandi læti í eldgosi. Áheyrendur fá líka að syngja nokkur lög. Í lokin gleðst Maxi yfir því hvað hann sé heppin mús, því að „Hvar sem tónlist hljómar, þar verða allir glaðir.“

Bækurnar um Maxa hafa notið mikilla vinsælda, hlotið fjölda viðurkenninga og komið út á mörgum tungumálum. Sögumaður í nýja ævintýrinu um Maxa er Unnur Eggertsdóttir en hún tók þátt í frumflutningi verksins undir stjórn Daníels Bjarnasonar í Los Angeles við mikið lof viðstaddra. Verndari verkefnisins er Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharmóníusveit Los Angeles sem frumflutti verkið á Reykjavíkur-hátíð sinni í Walt Disney-tónlistarhöllinni.

Boðið verður upp á listasmiðju í Hörpuhorni frá kl. 13 og aftur að tónleikum loknum. Þar geta tónleikagestir á öllum aldri búið til kórónur með Maxa og félögum.

EFNISSKRÁ

Tryggvi M. Baldvinsson Hátíðargjall fyrir einstaka mús
Jórunn Viðar úr Ólafi Liljurós
Anna Þorvaldsdóttir úr Hrími
Haukur Tómasson úr Storku
Jón Ásgeirsson Tröllaslagur

Gunnsteinn Ólafsson Þýtur í stráum
Bára Grímsdóttir Laumufarþegarnir
Daníel Bjarnason úr Collider  
Hallfríður Ólafsdóttir  lagið hans Maxa
HLJÓMSVEITARSTJÓRI 
Daníel Bjarnason   

SÖGUMAÐUR 
Unnur Eggertsdóttir   

SAGA OG MYNDIR
Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson