Tix.is

Um viðburðinn

Sumarið er komið og Dömur og herra stökkva út úr básum sínum eins og kálfar að vori til að skemmta sér og þér á Gauknum 3. maí.
Dömur og herra eru burlesquelistafólk sem leggur kapp á að svara kalli áhorfenda um húð, hlátur og hágæða gaman. Gestkvæmt verður hjá okkur að þessu sinni, undur mannslíkamans í öndvegi og meiri líkur en minni á því að þú sjáir ýmislegt sem þú hefur aldrei séð áður. Athugið að nekt gæti komið við sögu og sýningin er því aðeins við hæfi fullorðinna gesta. Athugið einnig að við byrjum stundvíslega og að myndatökur eru óheimilar.