Tix.is

Um viðburðinn

KÍTÓN, félag kvenna í tónlist, stendur nú fyrir klassískri tónleikaröð í fyrsta sinn og verða haldnir tónleikar bæði á Akureyri og í Reykjavík.

Inga Björk Ingadóttir kynntist lýrunni við nám í Berlín og hefur hljóðfærið síðan þá skipað stóran sess í tónsköpun hennar.  Á tónleikunum syngur Inga Björk og spilar eigin lög ásamt nokkrum lögum eftir íslenskar og erlendar tónlistarkonur sem hún hefur útsett sérstaklega.

Sérstæður hljómur lýrunnar leiðir sköpunarferlið við gerð laga og texta Ingu Bjarkar. Lýran er einstakt hljóðfæri, og hefur einnig sérstöðu í íslenskri tónlistarflóru. Hljómur hennar kjarnar og útvíkkar í senn. Lýran er eitt af elstu þekktu strengjahljóðfærunum og er hún notuð til tónlistarsköpunar, meðferðar og kennslu um allan heim.

Tónlistarkonan Inga Björk Ingadóttir hefur komið víða við á tónlistarferli sínum. Hún lauk burtfararprófi í píanóleik, lærði tónsmíðar og tölvutónlist. Hún hélt til náms í músíkmeðferð í Berlín árið 2001 og lauk þar námi 2006. Frá þeim tíma hefur hún sótt fjölda námskeiða og starfað að músíkmeðferð hér heima og erlendis. Hún kemur reglulega fram með tónlist sína og hefur einnig samið tónlist fyrir leikverk, dansverk og brúðuleikhús í Þýskalandi.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði