Tix.is

Um viðburðinn

KÍTÓN, félag kvenna í tónlist, stendur nú fyrir klassískri tónleikaröð í fyrsta sinn og verða haldnir tónleikar bæði á Akureyri og í Reykjavík.

Á fyrstu tónleikunum sem fram fara í Iðnó koma fram Erla Dóra Vogler, mezzósópran, og Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanóleikari en þær munu flytja sönglög eftir Jórunni Viðar. Erla Dóra og Eva Þyri halda upp á aldarafmæli Jórunnar Viðar árið 2018 með fjölda tónleika innan sem utan landsteinanna, og útgáfu geisladisks með söngverkum hennar.

Jórunn Viðar (1918-2017) er meðal dáðustu tónskálda þjóðarinnar og var mikill frumkvöðull á því sviði. Hún var fyrsta íslenska konan með próf í tónsmíðum og eina konan í Tónskáldafélagi Íslands í um tvo áratugi. Hún var fyrst Íslendinga til að semja kvikmyndatónlist, samdi fyrsta íslenska ballettinn og fyrsta píanókonsertinn í fullri lengd.

Markmið tónleikanna er að kynna þann framúrskarandi og fjölbreytta arf söngljóða sem hún lét þjóðinni í té á starfsævi sinni.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Akureyrarstofu