Tix.is

Um viðburðinn

Við sungum lögin, dönsuðum dansana, klæddumst magabolunum, söfnuðum ljósmyndunum og áttum okkur öll eitt uppáhalds Spice sem endurspeglaði okkar innri mann. 

Í dag eru rúm 20 ár síðan heimurinn var þeirra en enn þann dag í dag setjum við lögin þeirra á þegar partýin verða „extra spicy“. 
Er ekki komin tími á að heiðra þessi krafta krydd sem voru svo stór hluti af æsku okkar? Hvort sem þú ert eldresst Scary eða Posh með kalt hjarta þá er þetta viðburður sem þú vilt ekki missa af. 

Hljómsveitin Babies hefur vakið athygli fyrir einstakan hljóðfæraleik og stemningu, en ekki allir vita hvað þau eru öll miklir Spice Girls aðdáendur. Þær sem munu koma fram með Babies telja sig helstu Spice Girls aðdáendur landsins en það eru þær Salka Sól, Elísabet Ormslev, Karitas Harpa, Karó, Stefanía Svavars og Þuríður Blær ásamt því að sjálf GRL PWR hljómsveit Íslands, Reykjavíkurdætur munu vera með sérstaka innkomu á tónleikunum. 

Komdu á ógleymanlegt GRL PWR kvöld með frábærum söngkonum og skemmtikröftum á Húrra. Klæddu þig upp, vertu þín uppáhalds (ekki þessi sem þú þurftir að vera vegna þess að þín var frátekin) og syngdu og dansaðu með okkur. 

Viva FOREVER!!