Tix.is

Um viðburðinn
Tveir litlir ungar leita að vængjum sínum til að geta flogið af stað. Áhorfendum er boðið í ferðalag með þessum litlu ungum þegar þeir kanna umhverfi sitt í fyrsta sinn og læra að fjúga. Sagan er sögð með húmor og einlægni og blandar saman dansi, loftfimleikum og lifandi tónlist í ævintýralegri sýningu fyrir unga áhorfendur.

Fjaðrafok er samstarfsverkefni Bíbí & Blaka og írska sirkúshópsins Fidget Feet. Sýningin blandar saman lifandi tónlistarflutningi Jym Daly í samspili við hljóðmynd Sólrúnar Sumarliðadóttur.

Fyrir sýningu verður áhorfendum boðið í föndurstund þar sem að börnin geta búið til sínar eigin fuglagrímur.

Fjaðrafók er sirkus og dans sýning fyrir átján mánaða og eldri.

Framleitt af Fidget Feet, Riverbank Arts Centre og Bíbí & Blaka.

Stykla úr Fjaðrafok: https://www.birdandbat.org/strange-feathers