Tix.is

Um viðburðinn

Í nánd sumarsólstaða, þegar dagurinn er sem lengstur, mun Íslenski dansflokkurinn sýna Brot úr myrkri en flokkurinn hefur að undanförnu unnið að röð verka með myrkrið og berskjaldaðan líkamann að leiðarljósi. Sýningin er hin þriðja í þeirri röð og er sérstaklega útfærð fyrir bjart rýmið í porti Hafnarhússins. Brot úr myrkri er unnið út frá fyrri verkum raðarinnar.

Öll verkin eru flutt við tónlist Sigur Rósar og eru undir listrænni stjórn Ernu Ómarsdóttur og Valdimars Jóhannssonar, unnið í samvinnu við dansara.

Fyrsta verkið í röðinni; Myrkrið faðmar, var frumsýnt á listahátíðinni Norður og niður á vetrarsólstöðum 2017. Myndbands-innsetningin Örævi sem unnin var í samvinnu við Pierre-Alain Giraud var frumsýnd við opnun Vetrarhátíðar í Reykjavík í febrúar 2018 og var varpað á olíutankana við Marshall-húsið. Fjórði og lokahluti verður svo frumsýndur í Borgarleikhúsinu á Everybody’s Spectacular í nóvember 2018.

 

Listrænir stjórnendur: Erna Ómarsdóttir, Valdimar Jóhannsson

Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Elín Signý Weywadt, Ernesto Camilo Aldazabal Valdes, Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Þyri Huld Árnadóttir

Tónlist: Sigur Rós í samvinnu við Valdimar Jóhannsson

Búningar: Rebekka Jónsdóttir

Tæknistjóri: Valdimar Jóhannsson