Tvær goðsagnir – Frelsi til sölu og Dögun
Síðasta vetrardag 2018 hóf Bubbi nýja tónleikaröð Í Eldborg er hann lék plöturnar Kona og Sögur af landi í heild sinni í fyrsta sinn með hljómsveit.
Þann
24. apríl (Síðasta vetrardag) 2019 mun Bubbi taka fyrir plöturnar Frelsi til
sölu sem kom út árið 1986 og Dögun sem kom út 1987. Þær eru báðar taldar til
stærri meistaraverka Bubba og eru þar mörg af hans þekktustu og vinsælustu
lögum í bland við minna þekkt en frábær lög. Af þekkustu lögunum má nefna t.d.
Serbinn, Augun þín, Er nauðsynlegt að skjóta þá, Aldrei fór ég suður,
Frelsarans slóð og Bak við veggi martraðar svo einhver séu nefnd.
Bubba
til halds og trausts á sviðinu verða valinkunnir tónlistarmenn sem spilað hafa
með honum í gegn um áratugina og eru með okkar allra bestu
tónlistarmönnum. Þeir eru partur af sögu Bubba og hafa komið nálægt
fjölda verkefna hans. Nánar síðar.