Tix.is

Um viðburðinn

Flor de Toloache, handhafi Latin Grammy-verðlaunanna, er fyrsta mariachi-hljómsveit New York-borgar sem eingöngu er skipuð konum. Sveitin var stofnuð árið 2008 og forsprakkar hennar eru söngkonurnar Mireya I. Ramos og Shae Fiol. Líkt og algengast var á upphafsárum mariachi-tónlistarinnar var sveitin upphaflega tríó, skipað hörpu, fiðlu og vihuela. Í dag kemur Flor de Toloache fram sem fullskipuð mariachi-hljómsveit. Meðlimir sveitarinnar eiga sér margvíslegan uppruna og koma meðal annars frá Mexíkó, Púertó Ríkó, Dóminíska lýðveldinu, Kúbu, Kólumbíu, Þýskalandi, Ítalíu og Bandaríkjunum. Þessi menningarlegi suðupottur litar þeirra einstaka blæ og tón og Flor de Toloache býður upp á framsækna, fjölbreytta og ferska nálgun á mexíkóska þjóðlagatónlist. Þrátt fyrir að sveitin vinni að því að varðveita aldagamlar hefðir mariachi-tónlistarinnar verður blanda hennar af hinu hefðbundna og nútímalega til þess að útvíkka mörk hennar og færa nýjum áhorfendum hinn eina sanna mariachi-hljóm.