Tix.is

Um viðburðinn

ÉG BÝÐ MIG FRAM er listahátíð sem Unnur Elísabet Gunnarsdóttir heldur utan um. Þann 13. apríl mun Unnur flytja þrettán þriggja mínútna verk eftir þrettán listamenn úr ólíkum áttum. Allir listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa veitt Unni innblástur í gegnum tíðina með sinni listsköpun. Listamennirnir fengu allir sent sama bréfið með ósk um að semja örverk. 

Bréfið byrjaði svona:

Kæri listamaður þú hefur veitt mér innblástur! Mér þykir forvitnilegt hvernig þú hugsar og langar mikið til að fá að gægjast inn í hugarheim þinn...

…Allir sögðu já…


Ég býð mig fram  snýst um að brjóta niður veggi. Kasta sér út í alheiminn, sjá hvort hann grípur, kastar þér tilbaka eða fer með þig í rússíbanareið. Listahátíðin snýst um að koma saman, án fordóma, án landamæra, bara fólk að vinna saman. Hittast í miðju, teygjast, kuðlast eða móta hvort annað á stuttum þremur mínútum hvort sem þær verða enn fleiri í framtíðinni eða fyrstu og síðustu mínútur samvinnu þessara tveggja aðila. Það veit það enginn nema hann taki sénsinn.

Höfundar:

Aðalheiður Halldórsdóttir 

Arnór Dan Arnarson

Bergur Ebbi Benediktsson

Daði Freyr Pétursson

Kristín Gunnlaugsdóttir

Hannes Þór Egilsson

Kristín Þóra Haraldsdóttir

Vala Kristín Eiríksdóttir

Saga Sigurðardóttir

Ólöf Nordal

Margrét Bjarnadóttir

Barði Jóhannsson

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir


Flytjandi: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

“Mín skoðun er ekki endilega sú rétta. Mín sýn er ekki sú eina. Ég vil fagna lífsýn annarra. Ég vil færa miðju alheimsins” -Unnur Elísabet.


Verkið var frumsýnt í Mengi 26. október á síðasta ári. Nú verður það flutt sem partur af danshátíð Tjarnarbíós, Vorblót 2018, föstudaginn 13. apríl kl. 21:00 - ATH - Aðeins þessi eina sýning!