Textíl vinnusmiðja í Norræna húsinu á Barnamenningarhátíð fyrir börn 10 ára og eldri með listakonunum Eddu Mac og Bethina Elverdam.
Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt að skrá sig á tix.is, takmarkaður aðgangur.
Fimmtudagur 19. apríl kl. 13-15
Laugardagur 21. apríl kl. 13-15.
Námskeiðið fer fram á íslensku, ensku og dönsku.
Um sýninguna, Félagið áhugamanna um árshátíðir eftir Eddu Mac:
Bjartsýna-Bína kemur færandi hendi, Jafet geimfari mætir í vitlausum búning og Fyrirliðinn segir sama brandarann þriðja árið í röð. Þau eru öll í Félagi áhugamanna um árshátíðir. Félagið kemur saman annan laugardag febrúarmánaðar ár hvert. Portrettmyndir af öllum meðlimum verða til sýnis í Norræna húsinu frá 17. april (sýningin).
Edda Mac útskrifaðist með BFA gráðu frá Parsons vorið 2012. Hún hefur stundað nám í myndlist og textíl á Ítalíu, í Frakklandi, Suður-Kóreu og á Íslandi. Edda heldur úti Instagram síðunni drottonbaumen.