Tix.is

Um viðburðinn

UPPSELT 12. apríl - Aukatónleikum hefur verið bætt við, þeir fara fram þann 9. apríl.

Björk byrjar tónleikaferð sína um heiminn í Háskólabíó fimmtudaginn 12. apríl nk. Um er að ræða generalprufu ferðalagsins þar sem afrakstur margra mánaða vinnu verður prufukeyrður í fyrsta sinn fyrir áhorfendur. Tónleikarnir eru liður í útgáfu Útópíu sem er 10. sólóplata Bjarkar en hún kom út í lok síðasta árs. 

Björk er án efa þekktasti listamaður Íslands fyrr og síðar. Plötur hennar hafa selst í milljónum eintaka út um allan heim og fyrir þá síðustu Vulnicura vann hún m.a. Brit verðlaunin sem besta alþjóðlega söngkonan. Hún kemur fram með 7 flautuleikurum, slagverksleikara og raftónlistarmanni.  Hópurinn hefur verið við æfingar á Íslandi sl. vikur. Í Háskólabíó verður m.a. leikmynd tónleikaferðarinnar frumsýnd en hún er hönnuð af Heimi Sverrissyni og smíðuð í Irma studios. Danshöfundur er Margrét Bjarnadóttir. 

Þeir sem koma fram með Björk á þessum tónleikum eru flautuleikararnir: Melkorka Ólafsdóttir, Áshildur Haraldsdóttir, Berglind María Tómasdóttir, Steinunn Vala Pálsdóttir, Björg Brjánsdóttir, Þuríður Jónsdóttir og Emilía Rós Sigfúsdóttir. Bergur Þórisson sér um básúnuleik og raftónlist og Manu Delago um trommur og ásláttarhljóðfæri. Það er mikil eftirvænting í hópnum að spila fyrstu tónleika Útópíu ferðalagsins hér á Íslandi.

Björk hefur ekki komið fram á mörgum tónleikum sl. misseri og ár. Það er því mikill fengur að hún skuli hefja ferðalag sitt hér heima. Björk stefnir að því að koma aftur til Íslands eftir tvö ár og flytja Útópíu í endanlegu formi.