Tix.is

Um viðburðinn

Tónlistarhátíðin HEIMA 2018 fer fram í Hafnarfirði 18. apríl - síðasta vetrardag. Hátíðin markar eins og fyrr upphaf Bjartra daga, bæjarlistahátíðar Hafnfirðinga sem stendur dagana 18. – 22 apríl.

HEIMA 2018 er fimmta HEIMA-hátíðin og hefur hún sannarlega fest sig í sessi sem skemmtileg og einstök tónlistarhátíð þar sem boðið er upp á öðruvísi upplifun og meiri nánd en tónleikagestir sem og listamenn eiga að venjast.
Fjölskyldur munu sem fyrr opna heimili sín í miðbæ Hafnarfjarðar og í hverju húsi spila tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir. Fríkirkjan í Hafnarfirði hefur ákveðið opna dyr sínar í annað sinn fyrir HEIMA-fólki auk þess sem sviðið í Bæjarbíói verður notað eins og stofa þar sem tónleikagestir umkringja listamennina á sviðinu og þeir snúa baki í salinn.
Listamennirnir eru þrettán og allir koma fram tvisvar í sitthvoru HEIMA-húsinu í miðbænum. Það eru ekki allir að spila á sama tíma þannig að þeir sem eru duglegastir að rölta milli húsa geti séð sem flest atriði.
Fyrstu HEIMA-tónleikarnir hefjast um kl. 20.00. og þeim síðustu lýkur um kl. 23.00. Rás 2 verður á staðnum og mun útvarpa hluta dagskrárinnar.

Þeir sem koma fram á HEIMA 2018 eru meðal annarra:

Valgeir Guðjónsson
Between Mountains
Úlfur Úlfur
Bríet
Bjartmar Guðlaugs ásamt Sváfni Sig og Pálma Sigurhjartar
JóiPé x Króli
Ylja
Í svörtum fötum
Hjálmar
Heimilistónar
Dr. Spock
Pétur Ben
Kristina Bærendsen

Enn eiga nokkur nöfn eftir að bætast á þennan lista en HEIMA leitast við að bjóða upp á sem fjölbreyttasta dagskrá.

Armbönd á hátíðina verða afhent 18. apríl í Bæjarbíói eftir kl 16:00 gegn framvísun miða.