Partíbandið FM Belfast eru mikil páskabörn og ætla að halda upp á dauða og pínu Krists á Húrra miðvikudagskvöldið 28. mars (daginn fyrir Skírdag).
Hljómsveitin gaf nýverið út plötuna ISLAND BROADCAST sem er stútfull af partíslögurum sem fá að hljóma í bland við eldra efni á Húrra þetta fyrsta kvöld Páskadjamms 2018.
Smyrjið iljar ykkar með olíu og setjið upp partíþyrnakórónuna því nú skal tjútta.
Húsið opnar kl 21.
Aldurstakmark 20 ár.