Tix.is

Um viðburðinn

Rætur og vængir

Ráðstefna um skapandi samstarf þvert á landamæri tungumála og menningar.

Frá árinu 2008 hefur Borgarbókasafnið þróað öflugt fjölmenningarstarf sem byggir á þverfaglegu samstarfi við félög, stofnanir og einstaklinga, innanlands sem utan. Fjöldi verkefna hefur orðið til á þessum árum sem einkennast öll af fjölbreyttu og skapandi starfi. Sérstök áhersla er lögð á að samspil milli fjölbreyttra menningarheima og tungumála auðgi mannlíf borgarinnar.

Til að fagna þessum 10 ára áfanga og miðla reynslunni verður haldin norræn ráðstefna í Veröld – húsi Vigdísar, 24. og 25. maí 2018. Auk verkefna Borgarbókasafnsins og samstarfsaðila á sviði fjölbreyttrar menningar og tungumála í Reykjavík verða þrjú norræn verkefni kynnt. 

Tilgangur ráðstefnunnar er að sýna fram á hversu miklum árangri má ná með fjölbreyttu skapandi samstarfi sem nær þvert yfir samfélagið allt.  Hugmyndin er að veita ráðstefnugestum innblástur, skapa ný tengsl og hvetja til þróunar fleiri samstarfsverkefna á þessu sviði 

Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Norska menningarráðið, Norrænu ráðherranefndina, Vigdísarstofnun, mennta – og menningarmálaráðuneytið og íslensku UNESCO nefndina og er hluti af samnorræna verkefninu “Inkluderende kulturliv i Norden”.

Meðal þeirra sem koma fram eru Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti og velgjörðarsendiherra tungumála á vegum UNESCO- menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Eliza Reid, forsetafrú.

Við vonumst til að sjá sem allra flesta. Allir eru velkomnir!

Ráðstefnutungumál: Íslenska og enska
Ráðstefnustjóri: Eva María Jónsdóttir
 

Hægt er að fylgjast með viðburðinum á Facebook.

www.rootsandwings.is